Þýðingarmikil hráefni (e. critical raw materials) eru sífellt meira í umræðunni í Evrópu. Evrópusambandið hefur skilgreint 34 hráefni sem þýðingarmikil. Er það skilgreint út frá efnahagslegri þýðingu og áhættu í framboði á efnunum. Listinn er breytilegur og Evrópusambandið uppfærir hann reglulega ef þörf er á. Það sem einkennir þýðingarmikil hráefni er yfirleitt að núverandi hagkerfi ganga hratt á birgðir hráefnisins og/eða að framleiðslan fer að mestu fram innan landa sem eru óáreiðanleg vegna stjórnmálaástands, spillingar, stríðsátaka eða annarra landfræðipólitískra ástæða.
Hvert er notagildi þýðingarmikilla hráefna?
Þýðingarmikil hráefni eru nauðsynleg fyrir framleiðslu á ýmissi nútímatækni. Sem dæmi má nefna liþíum í rafhlöðum, Gallium í sólarsellum og bóron í vindmyllum. Einnig er mikið af þessum efnum að finna í raftækjum, rafbílum, flugvélum ofl.

Hvar er þessi efni að finna í heiminum?
Á myndinni hér að neðan má sjá kort af framleiðslu og námuvinnslu þýðingarmikilla hráefna í heiminum og hvernig hún skiptist niður á mismunandi lönd. Til dæmis eru Kína með 100% af framleiðslu á sjaldgæfum jarðmálmum (HREEs) og Tyrkland með 49% af námuvinnslu á Boron. Þetta kort sýnir hversu misskipt framboð og framleiðsla þessara efna er á heimsvísu. Þetta undirstrikar þörfina á öruggum aðfangakeðjum þessara hráefna til að tryggja framboð þeirra í Evrópu.
