Í dag er alþjóðlegi vasaskrímsladagurinn (International Pokémon Day), en vasaskrímslin fagna 30 ára afmæli! Dagurinn er haldinn hátíðlegur í tilefni upprunalegu tölvuleikjanna, sem komu út 27. febrúar, árið 1996. Síðan þá hafa vasaskrímslin notið gífurlegra vinsælda á heimsvísu í formi tölvuleikja, leikfanga og safngripa.
Vasaskrímslin eru jafn fjölbreytileg og þau eru mörg (yfir 1000 talsins), en flest hver hafa þau einhverja fyrirmynd úr náttúrunni eða samfélaginu. Til að mynda eru nokkur skrímsli sem draga fyrirmynd sína frá úrgangi, en hér verður fjallað nánar um þau.




Í tölvuleiknum Pokémon Go, þegar Trubbish eða Garbodor er fangaður, er vasaskrímslaþjálfarinn verðlaunaður með miklu umframmagni af „Stardust“, sem þjónar sem ákveðinn gjaldmiðill í leiknum. Það er skemmtileg leið til að endurspegla verðmæti úrgangs í samfélaginu okkar, ef hann er flokkaður og meðhöndlaður rétt.
Líkt og í úrgangi, þá geta fundist mikil verðmæti í vasaskrímslunum, þá sérstaklega í safnvörunum. Pokémon-spil hafa verið í útgáfu frá því að vasaskrímslin komu fyrst á markað, þá bæði til að spila með og sem safnvara. Eins og með aðrar safnvörur þá eiga Pokémon-spil það til að safnast upp, gleymast eða safnarinn missir áhugann. Þá fylgir oft sú ákvörðun að losa sig við safnvöruna.
Umhverfis- og orkustofnun hvetur fólk til að kanna hvort Pokémon-spil hafi verðgildi áður en þeim er hent. Mikil eftirspurn getur verið eftir slíkum spilum og því geta þau átt áframhaldandi líf. Hver veit nema einhverjir gullmolar leynist í skókassanum inni í bílskúr? Verðmætustu Pokémon-spilin eru oft þau sem voru fyrst gefin út, og hafa því safnað ryki hvað lengst.
Ef þið viljið þó endilega henda Pokémon-spilunum ykkar í ruslið, þá er betra að flokka þau allavega rétt og setja í bláu pappatunnuna 😊