Endurvinnsla veiðarfæra

Með samningi Úrvinnslusjóðs og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) tekur SFS á sig ábyrgð á söfnun og meðhöndlun veiðarfæraúrgangs sem inniheldur plast og kostnað sem af því hlýst í stað þess að greitt sé úrvinnslugjald af veiðarfærum sem sett eru á markað. 

Markmið samningsins er að sjávarútvegur beri ábyrgð á úrvinnslu veiðarfæra sem innihalda plast, að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif veiðarfæraúrgangs en jafnframt halda í lágmarki þeim kostnaði sem fylgir förgun á veiðarfæraúrgangi.

Frekari upplýsingar um endurvinnslu veiðarfæra, móttökustöðvar veiðarfæraúrgangs og móttökuskilmála er að finna á vefsíðu SFS.