Samkvæmt 19. grein laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs ber rekstraraðilum að skila Umhverfis- og orkustofnun skýrslu um meðhöndlun úrgangs, á því formi sem stofnunin leggur til. Stofnunin fer fram á að rekstraraðilar skili flokkuðum gögnum, eins og nánar er lýst hér að neðan, og býður upp á þrjár leiðir til að skila þeim í Gagnagátt stofnunarinnar:
Söfnun og millimeðhöndlun
Seyra
Afdrif úrgangsins (innanlands eða erlendis)
Undirbúningur fyrir endurnotkun
Urðunarstaður
CSV skil
Þegar búið er að skrá sig inn í Gagnagátt Umhverfis- og orkustofnunar til að skila gögnum fyrir hönd rekstraraðila skal finna reitinn „Meðhöndlun úrgangs“ og velja þar nafn þess lögaðila sem skila á gögnum fyrir (hægt er að skila fyrir fleiri en einn aðila ef svo á við). Þaðan er farið inn í fyrsta skrefið, „1. Leiðbeiningar“.
Dæmi: ef skilin eru fyrir Umhverfis- og orkustofnun lítur það svona út:

Einnig er hægt að skoða og sækja eldri skráningar með því að velja „Yfirlit“. Undir „Yfirlit“ er líka hægt að breyta aðaltengilið og bæta við eða eyða skráningaraðilum, til dæmis vegna starfsmannabreytinga.

Ef upp koma annmarkar á skilum eða í ljós kemur að skil voru ekki fullnægjandi geta sérfræðingar Umhverfis- og orkustofnunar opnað skýrsluskilin aftur (ógilt skilin) og notandi fer þá í gegnum ferlið á ný.
Þegar skilað er með eyðublaði skiptist skráningarferlið í fjögur skref þar sem notandinn er leiddur í gegnum ferlið. Skráningin vistast sjálfkrafa svo hægt er að breyta henni og ljúka seinna, svo framarlega sem ekki er búið að staðfesta skýrsluskil í skrefi 4.

Fyrst birtast allir úrgangsflokkar sem eru í boði. Til að aðlaga eyðublaðið hakar notandi einungis við þá úrgangsflokka sem skilað verður fyrir og velur svo „Áfram í skráningu“.

Þá birtast þeir úrgangsflokkar sem voru valdir, á skráningarmynd líkri þeirri hér að neðan (grænu línurnar eru völdu flokkarnir). Ef í ljós kemur að úrgangsflokk vantar er hægt að fara til baka í skrefið á undan, velja hann og halda svo áfram.

Fyrir hverja skráningu er valinn plúsinn lengst til hægri við úrgangsflokkinn. Þá birtist skráningargluggi þar sem skrá skal ÍSAT atvinnuflokkun, sveitarfélag, meðhöndlun og magn í tonnum. Fylla þarf út alla reitina svo skráningin sé gild. Til að skrá aðra röð er ýtt aftur á plúsinn.

Í kafla 3, Leiðbeiningar fyrir hvern skilareit, er lýst hvernig skrá skal hvern reit fyrir sig. Þegar skráningu er lokið er valið „Áfram í síðasta skrefið“.
Í fjórða og síðasta skrefinu er yfirlit yfir skýrsluskilin. Alltaf er hægt að fara til baka í fyrri skref og breyta skráningum svo lengi sem ekki er búið að staðfesta skýrsluskilin.
Ef allt lítur vel út lýkur notandi skráningunni með því að ýta á hnappinn Staðfesta skýrsluskil neðst á eyðublaðinu. Við staðfestingu læsast skilin og skiladagur miðast við staðfestingardag.

Viðbótarupplýsingar um skilin eða úrganginn má skrá í athugasemdareitinn. Allar upplýsingar, til dæmis um gæði gagnanna eða breytingar frá fyrri skilum, eru vel þegnar.
Ef valið er að skila skilaskrá þarf fyrst að sækja excel vinnuskjalið á fyrstu síðu. Ath. ekki er hægt að nota gömul csv skjöl sem aðilar hafa notað áður. Sækja þarf skjalið svo allir dálkar og gildi í flettigluggum séu uppfærð.
Þegar skjalið hefur verið fyllt út er farið aftur á fyrstu síðu skráningarformsins og smellt á „Hlaða inn útfylltu CSV-skjali“. Þá opnast gluggi þar sem notandinn velur skrána. Þegar villulausri skrá hefur verið hlaðið upp fer notandinn sjálfkrafa í lokaskrefið þar sem hægt er að skrifa athugasemd og staðfesta skilin.
Einnig er hægt að skoða allar skráningarlínur áður en skil eru staðfest, með því að velja 3. skrefið (3. Skráning). Þar má eyða einstökum línum, breyta þeim og bæta við nýjum.
Villuleit fer fram í skránni. Ef eitthvað er rangt skráð birtist villumelding sem tilgreinir villuna og í hvaða línu hún er. Athugið að efsta línan í skránni er ekki talin með í villumeldingunni.
Dæmi: ef eftirfarandi skilaskrá er skilað:

birtist þessi villumelding, þar sem sveitarfélagsnúmerið 00001 er ekki til. Laga þarf númerið og skila aftur.

Í kafla 2.2.1 er farið yfir forskrift skilaskrárinnar og vísað í skrár sem sýna hvaða gildi eru leyfileg. Þær geta til dæmis auðveldað vörpun á milli kerfis rekstraraðila og forskriftarinnar.
Til að ljúka skráningu þarf að staðfesta skýrsluskil eins og þegar skilað er með eyðublaði.
Efsta línan tiltekur dálkana sem skilað er og er ekki lesin inn. Allar línur þar á eftir eiga að innihalda neðangreinda 9 dálka, með þeim gildum sem leyfileg eru samkvæmt uppgefnum listum. Dálkunum er skilað í þessari röð, og röðin skiptir máli svo innlestur takist:
Í kafla 3, Leiðbeiningar fyrir hvern skilareit, er lýst hvernig skrá skal hvern reit fyrir sig þegar skilað er með CSV skrá.
Hér eru línur 2 og 3 úr dæminu í kafla 2.2 greindar:
| Dálkur | Lína 2 | Skýring | Lína 3 | Skýring |
|---|---|---|---|---|
| A – Úrgangsflokkur | 45 | Úrgangur frá götuhreinsun | 51 | Seyra |
| B – Meðhöndlun | 6 | Urðun | 2 | Önnur endurvinnsla |
| C – Sveitarfélag | 0000 | Reykjavíkurborg | 00001 | Ekki til, sem skilar villu |
| D – ÍSAT flokkun | HEIMILI | Úrgangur frá heimilum | 95.22 | Viðgerðir á heimilistækjum og heimilis- og garðyrkjuáhöldum |
| E – Skráningarár | 2025 | Árið sem skilað er fyrir | 2025 | Árið sem skilað er fyrir |
| F – Magn | 45.7 | Magn úrgangsins í tonnum | 30.6 | Magn úrgangsins í tonnum |
| G – Uppruni seyru | Ekki seyra, svo reiturinn er auður | 2 | Uppruni seyrunnar er tveggja þrepa hreinsivirki | |
| H – Urðunarstaður | 43 – utan urðunarstaða | Urðun fór ekki fram á viðurkenndum urðunarstað á Íslandi | Ekki urðun, svo reiturinn er auður | |
| I – Afdrif | zz – Erlendis | Úrgangurinn var sendur erlendis til lokameðhöndlunar | is – Ísland | Úrgangurinn fór í lokameðhöndlun á Íslandi |
Umhverfis- og orkustofnun mælir með því að gögnum sé skilað sjálfvirkt með API-tengingu. Ef áhugi er á að skila með þeim hætti skal hafa samband við starfsfólk stofnunarinnar.
Ef rekstraraðili meðhöndlaði ekki úrgang á skilaárinu en hyggst þó halda áfram að meðhöndla úrgang ber honum að skila núllskýrslu. Þá er smellt á hnappinn Skila núllskýrslu á fyrstu síðu og skilin staðfest. Umhverfis- og orkustofnun mælist til þess að skráð sé athugasemd sem útskýrir núllskýrsluna.
Í þessum kafla er lýst hvernig fylla skal út hvern skilareit og hvaða möguleikar eru í boði.
Valið er á milli 72 úrgangsflokka. Hér má sjá lista yfir flokkana í Excel-skjali, með liðsnúmeri hvers flokks, lýsingu, spilliefnaflokkun og samsvörun við WStatR og LoW kóða.
Þegar skilað er:
Þegar gögnum er skilað fyrir úrgangsflokkinn 11.4 Seyra ber að skrá uppruna hennar, þ.e. hvort seyran komi frá rotþró, tveggja þrepa hreinsivirki eða öðrum uppruna.
Svo hægt sé að rekja uppruna úrgangs til sveitarfélaga og atvinnugreina, eða heimila, skráir skilaaðili frá hvaða sveitarfélagi úrgangurinn kemur og atvinnugreinaflokk starfseminnar sem hann kom frá. Skráð er „HEIMILI“ ef úrgangur er frá heimilum, en viðeigandi ÍSAT2008 tala (xx.xx.x) ef hann er frá rekstri. Talan getur verið tveir til fimm tölustafir með punkti á milli, eftir því hvort undirflokkun er til staðar.
Mælt er með því að hafa lista yfir ÍSAT atvinnuflokkana eða Fyrirtækjaskrá Skattsins (sjá kafla 3.2.2) opna á meðan skráð er, til að finna nákvæmustu flokkunina. Ef ekki reynist hægt að skrá nákvæmt ÍSAT númer má styðjast við almennari flokka, svo sem yfirflokkana A til X sem eru neðst í listanum.

Ef rekstrarúrgangur kemur frá mörgum atvinnugreinaflokkum sem ekki er hægt að aðgreina nánar má skrá hann á yfirflokkana A til X.
ÍSAT skráningar eru einnig innbyggðar í ýmsar lausnir sem rekstraraðilar kunna að nota. Í Business Central er til dæmis hægt að setja upp Þjóðskrárlausn þar sem ÍSAT númer skráist sjálfkrafa og hægt er að leita eftir ÍSAT númerum í kerfinu.
Við skráningu söfnunar og millimeðhöndlunar breytist hvernig skrá skal sveitarfélag og ÍSAT atvinnugreinaflokkun. Markmiðið er að einfalda skráninguna og auka rekjanleika úrgangsins. Skráningin byggir á því hvaðan úrgangurinn kom til þess aðila sem skráir hann:
Í stuttu máli: ÍSAT atvinnuflokkun og sveitarfélag eru skráð samkvæmt þeim aðila sem afhenti úrganginn.
Milli- og lokameðhöndlunaraðilar eiga alfarið að styðjast við Fyrirtækjaskrá Skattsins við val á ÍSAT atvinnuflokkun og sveitarfélagi.
Dæmi: skráning á 3 tonnum af pappírsúrgangi sem kom frá starfsstöð Umhverfis- og orkustofnunar í Mývatnssveit. Svona eru ÍSAT flokkun og sveitarfélag Umhverfis- og orkustofnunar fundin í Fyrirtækjaskrá Skattsins:

Söfnunaraðilar geta einnig fundið ÍSAT í Fyrirtækjaskrá, en ef hægt er að velja aðra og nákvæmari ÍSAT skráningu en þá sem þar kemur fram er það jákvætt. Þá mælist stofnunin til þess að haft sé samband við sérfræðinga hennar til að staðfesta rétta flokkun. Sérfræðingarnir geta líka aðstoðað við að gera ÍSAT skráninguna nákvæmari.
Ef úrgangur er frá rekstri sem er skráður með fleiri en einn atvinnugreinaflokk skal velja það númer sem skráð er fyrst undir ÍSAT Atvinnugreinaflokkun í Fyrirtækjaskrá.

Meðhöndlun úrgangs skiptist í söfnun, millimeðhöndlun og lokameðhöndlun, eftir því hvar í virðiskeðjunni hún fer fram. Hingað til hefur lokameðhöndlun verið ráðandi í gagnaskilum, en nú safnar stofnunin gögnum frá allri virðiskeðju úrgangsins, frá því að hann verður til þar til hann fer í lokameðhöndlun.
Valið er á milli 10 meðhöndlunarflokka, sem tilheyra þremur yfirflokkum í endanlegri skýrslu. Númerin hér að neðan eru notuð í csv-skilum. Sjá skilgreiningar í lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
| Nr. | Meðhöndlun | Yfirflokkur |
|---|---|---|
| 9 | Söfnun (ný meðhöndlunarleið, sjá frétt um gagnaskil söfnunar og millimeðhöndlunar) | Söfnun |
| 10 | Millimeðhöndlun (ný meðhöndlunarleið, sjá frétt um gagnaskil söfnunar og millimeðhöndlunar) | Millimeðhöndlun |
| 1 | Jarðgerð (moltugerð, ekki nýting í landmótun eða urðun) | Lokameðhöndlun – Endurvinnsla |
| 2 | Önnur endurvinnsla | Lokameðhöndlun – Endurvinnsla |
| 8 | Undirbúningur fyrir endurnotkun | Lokameðhöndlun – Endurvinnsla |
| 3 | Orkuendurnýting | Lokameðhöndlun – Endurnýting |
| 4 | Fylling (sjá skilgreiningu í breytingalögum nr. 103/2021) | Lokameðhöndlun – Endurnýting |
| 5 | Önnur endurnýting | Lokameðhöndlun – Endurnýting |
| 6 | Urðun | Lokameðhöndlun – Förgun |
| 7 | Brennsla án orkunýtingar | Lokameðhöndlun – Förgun |
Nánari útskýringu á hverjum meðhöndlunarflokki og hvaða flokk skal velja má finna á síðunni Meðhöndlunarflokkar úrgangs.
Svo hægt sé að vita hvaða úrgangur fer í lokameðhöndlun hérlendis og hvaða úrgangur er fluttur úr landi ber rekstraraðilum að tilgreina hvort lokameðhöndlun fór fram á Íslandi eða erlendis:

Aðilar sem skrá urðun þurfa nú að tilgreina urðunarstað eða utan urðunarstaða. Þeir urðunarstaðir sem skráningaraðili er tengdur birtast sjálfkrafa í felliglugga þegar meðhöndlunin „urðun“ er valin.
Umhverfis- og orkustofnun mælist til þess að þeir sem skrá urðun utan urðunarstaða lýsi í athugasemd í lokaskrefinu hvernig sú urðun fór fram, til dæmis ef um er að ræða seyrugryfju, uppfyllingu gamallar námu eða jarðvegslosunarstað.
Magn er skráð eins hvort sem skilað er með eyðublaði eða csv skrá.
Magni skal skila í tonnum. Ef gögnin eru skráð í kílógrömmum þarf að umreikna þau í tonn áður en þau eru skráð. Aukastafir eru aðskildir með punkti. Ekki á að slá inn þúsundapunkta; þeir birtast í línunni þegar skráning hefur verið staðfest.
Dæmi: 23.001,4 tonn (tuttugu og þrjú þúsund og eitt komma fjögur) skráist sem
23001.4
Þar sem miklar uppfærslur voru gerðar á Gagnagátt fyrir skilin 2026 er viðbúið að einhver vandamál komi upp. Sérfræðingar munu gera sitt besta til að bregðast við þeim fljótt og örugglega.
Sérfræðingar í úrgangstölfræði hjá Umhverfis- og orkustofnun veita aðstoð í gegnum netfangið urgangur@uos.is.