- Virka daga: 09:00 - 15:00
- 591-2000
- ust@ust.is
- Virka daga: 09:00 - 15:00
- 591-2000
- ust@ust.is
Allir mega nota merkin endurgjaldslaust en þeim má ekki breyta á nokkurn hátt. Leiðbeiningar um notkun má finna hér í handbókinni.
Smelltu á viðeigandi merkingu til að hlaða niður .zip skrá með mismunandi útgáfum merkingarinnar.
Samnorrænu flokkunarmerkingarnar eru ætlaðar til merkinga á úrgangsílátum við heimili og vinnustaði, á grenndarstöðvum, endurvinnslustöðvum, á ruslabiður í almenningsrýmum og á umbúðir.
Kostir sameiginlegs kerfis fyrir flokkunarmerkingar fela í sér betri aðstæður til að flokka úrgang rétt. Kerfið gerir almenning öruggari í flokkun þar sem sömu merkingar gilda um allt land þó að söfnun geti verið breytileg.
Í lögum um meðhöndlun úrgangs (10.gr) kemur fram að nota skuli samræmdar merkingar við meðhöndlun úrgangs fyrir a.m.k. úrgangstegundirnar pappír og pappa, málma, plast, gler, lífúrgang, textíl og spilliefni. Útfærslan er útlistuð nánar í reglugerð um meðhöndlun úrgangs (12. gr). Þar er merkingarskyldan einnig tengd við samræmdar norrænar flokkunarmerkingar. Fenúr, fagráð um endurnýtingu, hélt utan um innleiðingu merkjanna hér á landi fyrstu árin en nú hefur verkefnið færst yfir á hendur Umhverfisstofnunar sem leiðbeinir og styður við innleiðingu þeirra.
Merkingarnar byggja á dönskum úrgangsmerkingum og norrænu samstarfi um samræmdar merkingar í úrgangsmálum. Í kerfinu er gert ráð fyrir að ílát geti haft eina eða fleiri merkingu.
Öllum framleiðendum stendur til boða að nýta flokkunarmerkingarnar á umbúðir enda er kerfið gjaldfrjálst og öllum aðgengilegt. Umhverfisstofnun mælir eindregið með að framleiðendur og innflutningsaðilar noti samnorrænu flokkunarmerkingarnar á umbúðir þó að lagaleg skylda um notkun þeirra sé ekki til staðar. Framleiðendur geta á auðveldan hátt sýnt ábyrgð með réttum merkingum sem einfalda handhöfum úrgangs að koma honum í réttan farveg, allt frá kaupum til flokkunar.
Framleiðendur sem vilja kynna sér hönnunarstaðal merkinganna er bent á þessar leiðbeiningar frá EUPicto.