Mikil tækifæri í bættri auðlindanýtingu – Urðunardagurinn 2026

24. mars 2026

Þann 20. mars sl. stóðu SORPA, ReSource og Fenúr að Urðunardeginum þar sem m.a. starfsfólk Umhverfis- og orkustofnunar (UOS) héldu ávarp og erindi.

Fyrirlesarar á Urðunardeginum 2026. F.v. Stefán Gíslason Environice, Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir Umhverfis- og orkustofnun, Erla Guðrún Hafsteinsdóttir Verkís/Fumís, Inga Rún Helgadóttir Umhverfis- og orkustofnun, Þorleifur Þorbjörnsson Sorpa, Nicolas Proietti ReSource International, Lilja Þorsteinsdóttir ReSource, Torfi Jóhannsson Sorpa og Freyr Eyjólfsson Sorpa. Mynd eftir Björn Inga Ásgeirsson.

Dagurinn hófst með ávarpi frá Gesti Péturssyni, forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar, um árangur síðustu ára og tækifærin sem felast í því að draga úr urðun. Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis, hélt erindi um tölfræði urðunar og skráningu gagna til UOS og Inga Rún Helgadóttir, sérfræðingur í teymi losunarbókhalds, fjallaði um losun frá urðun í losunarbókhaldi Íslands. Aðrir fyrirlesarar voru frá Verkís/Fumís, Environice, SORPU og ReSource International með lokaorðum frá Jóni Viggó Gunnarssyni framkvæmdarstjóra SORPU bs.

Dagskrá Urðunardagsins 2026

Ráðstefnan var vel sótt af opinberum aðilum sveitarfélaga og stofnanna auk annarra hagsmunaaðila úr atvinnugeira úrgangsmeðhöndlunar á Íslandi. Eftir vel framsett erindi sátu fyrirlesarar í pallborði þar sem tekið var við spurningum úr sal. Umræður voru áhugaverðar og sýndu ágæti þess að koma saman og ræða málefni urðunar á Íslandi. Auðveldara er að finna lausnir með opnum samskiptum allra hagaðila og var ráðstefnan mikilvægur liður í því.

Líkt og fram kemur í frétt ReSource um Urðunardaginn þá undirstrikaði ráðstefnan að sterkur áhugi og vilji er til staðar til að þróa og bæta meðhöndlun úrgangs á Íslandi. Með auknu samstarfi er unnt að draga verulega úr urðun, lágmarka umhverfisáhrif og efla sjálfbæra nýtingu auðlinda á Íslandi.

Fyrirlesarar í pallborði. Mynd eftir Björn Inga Ásgeirsson.
Inga Rún Helgadóttir, sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun, að kynna losun frá urðun á Urðunardeginum 2026. Mynd eftir Lilju Þorsteinsdóttur.

Fleiri fréttir