Leiðbeiningar fyrir flokkun á byggingar- og niðurrifsúrgangi

31. janúar 2025

Nýjar flokkunarleiðbeiningar fyrir byggingarsvæði hafa verið gefnar út. Leiðbeiningarnar eru myndrænar og á þremur tungumálum (íslensku, ensku og pólsku). Mælt er með að staðsetja þær við gáma og á kaffistofum til að tryggja betri flokkun. Leiðbeiningarnar má finna hér.

Byggjum grænni framtíð

Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð. Aðgerð 4.3. í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 snýr að kynningarátaki um nýjar flokkunarkröfur á bygginar- og niðurrifsúrgangi hjá rekstraraðilum. Markmið aðgerðarinnar er að styðja við árangursríka innleiðingu á nýjum flokkunarkröfum byggingar- og niðurrifsúrgangs, ásamt því að stuðla að betri flokkun og öflugra hringrásarhagkerfi. Samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs ber að flokka byggingar – og niðurrifsúrgang í amk. 7 flokka, þ.e. spilliefni, timbur, steinefni, málma, gler, plast, pappa og gifs. Umhverfis- og orkustofnun ber ábyrgð á Aðgerð 4.3. og hafði því umsjón með gerð leiðbeininganna.

Myndrænar leiðbeiningar á þremur tungumálum

Til að kortleggja stöðu flokkunar á byggingar- og niðurrifsúrgangi hjá rekstraraðilum sendi Umhverfis- og orkustofnun út könnun þess efnis á yfir 40 rekstraraðila í þessum geira. Spurt var um gæði flokkunar, helstu hindranir og tækifæri auk þess hvort þörf væri á frekari leiðbeiningum fyrir flokkun á verkstað. Niðurstöður spurningakönnunarinnar voru skýrar, meirihlutinn kallaði eftir frekari leiðbeiningum. Þá kom sérstaklega fram í könnuninni og samtölum við rekstraraðilana að mikilvægt væri að hafa leiðbeiningarnar á nokkrum tungumálum og myndrænar.

Í kjölfarið voru útbúnar myndrænar leiðbeiningar fyrir flokkun á verkstað, á þremur tungumálum (íslensku, ensku og pólsku) og innihalda helstu leiðbeiningar fyrir hvern úrgangsflokk. Notast er við samræmdu flokkunarmerkingarnar ásamt myndum og textalýsingum. Leiðbeiningarnar hafa verið rýndar og samþykktar af nokkrum stærstu úrgangsmeðhöndlunaraðilum á Íslandi.

Fleiri fréttir