Þann 21. maí verður tekið í notkun stafrænt kerfi fyrir flutning úrgangs milli landa. Nánari upplýsingar um kerfið sjálft er að finna í frétt á úrgangur.is og á kynningarfundi sem Umhverfis- og orkustofnun hélt um kerfið í lok mars.

Rekstraraðilar þurfa að stofna aðgang inn í kerfið. Innskráning fer fram í gegnum EU Login. Umhverfis- og orkustofnun þarf að staðfesta aðganginn áður en hægt er að nota hann.

Við stofnun aðgangs fyrir rekstraraðila verður fyrsti notandinn sjálfkrafa að master notanda fyrir rekstraraðilann. Master notandinn bætir við öðrum notendum eftir þörfum, bæði venjulegum notendum og nýjum masterum. Fyrsti notandinn er eini notandinn sem Umhverfis- og orkustofnun samþykkir en hann samþykkir sjálfur aðra notendur fyrir rekstraraðilann. Umhverfis- og orkustofnun áskilur sér rétt til að leita staðfestingar hjá prókúruhafa rekstraraðila á því að fyrsti notandinn hafi umboð til að starfa fyrir hönd rekstraraðilans áður en aðgangur hans er staðfestur.

Mikilvægt er að fylla út allar viðeigandi upplýsingar um ykkar rekstraraðila. Þar sem óskað er eftir Registration numberskuluð þið setja IS + kennitölu.

Þeir rekstraraðilar sem hafa starfsemi innan Evrópusambandsins eru líklega með EORI-númer. Það er skylda að skrá EORI-númer þar sem rekstraraðili hefur slíkt númer. Ef rekstraraðili er í vafa um hvort hann sé með EORI-númer eða ekki, er hann líklega ekki með slíkt númer.

    Til að skrá ykkur inn í kerfið notið þið þennan hlekk: https://webgate.ec.europa.eu/env-traces/

Við skráningu má fylgja leiðbeningarmyndböndum frá framkvæmdastórn Evrópusambandsins. Flestir rekstraraðilar nota efstu tvö myndböndin Registration of operators – first time in DIWASS og Requesting authorisation to represent an operator (user not active in DIWASS).

Hér má finna ítarlegri leiðbeiningar, þar á meðal um hvernig er hægt að stofna EU Login.

Þótt búið sé að opna fyrir skráningu, verður ekki hægt að nota kerfið til að tilkynna um flutning úrgangs fyrr en þann 21. maí 2026.

Beina má spurningum til urgangur@uos.is.