Íslenska úrgangsfjallið hlýtur tilnefningu til Lúðursins

26. febrúar 2024

Umhverfisstofnun og auglýsingastofan TVIST hafa hlotið tilnefningu til auglýsingaverðlaunanna Lúðursins. Tilnefningin er í flokki PR – almannatengsla fyrir íslenska úrgangsfjallið.

Íslenska úrgangsfjallið var sett upp á viðburði til þess að vekja athygli á verkefninu Allan hringinn.

Ísland er í sjöunda sæti yfir þær þjóðir innan Evrópu sem henda mestu magni af heimilisúrgangi á hverju ári eða að meðaltali um 667 kg á hvern Íslending. Að því tilefni var íslenska úrgangsfjallið reist, táknræn 667 kg ruslahrúga inni í Góða hirðinum. Markmiðið með úrgangsfjallinu var að sýna hve mikilvægt það er að draga úr óþarfa neyslu, endurnýta meira og urða minna.

Allan hringinn er samstarfsverkefni á vegum stofnana, sveitarfélaga, rekstraraðila í úrgangsþjónustu og hagsmunasamtaka í atvinnulífinu. Markmiðið með Allan hringinn er að kynna breytingar í úrgangsmálum árið 2023 í kjölfar gildistöku nýrra laga og hvetja landsmenn alla til að taka þátt í að mynda hringrásarhagkerfi á Íslandi af fullum krafti.

Hópurinn sem stendur að baki verkefninu Allan hringinn, fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Úrvinnslusjóði, Endurvinnslunni, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, SORPU, Terra umhverfisþjónustu, Íslenska gámafélaginu, Samtökum verslunar og þjónustu og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Mynd: Anton Brink.

Fleiri fréttir