Íslenska gámafélagið hefur endurvinnslu á gleri 

13. júní 2025

Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út ráðgefandi álit þess efnis að glerumbúðaúrgangur, eða sambærilegt gler, hætti að vera úrgangur þegar hann hefur farið í gegnum endurnýtingaraðgerð Íslenska gámafélagsins ehf. þar sem afurðin er glersandur eða glermöl.  

Kostur þess að vinna vöru úr úrgangi frekar en úr nýju hráefni eru að draga úr álagi sem verður á auðlindir við það að vinna hráefni til framleiðslu á sambærilegri vöru á markaði. Í þessu tilfelli er það sandur sem fenginn er af efnistökusvæðum, t.a.m. sandnámum eða úr ám. 

Endurnýtinginaraðgerðin sem fjallað er um í álitinu er útgáfa af endurvinnslu. Verið er að endurvinna úrgangsefni í vöru til notkunar í öðrum tilgangi en upprunalegum. Afurðina, glersandinn eða eftir atvikum glermölina, er hægt að nýta á ýmsa vegu í stað annarra steinefna, til dæmis sem íblöndunarefni í malbiksframleiðslu. 

Álit Umhverfis- og orkustofnunar er unnið í samræmi við reglugerð um endurnýtingu úrgangs nr. 1078/2015. Lesa má álitið í bréfi til Íslenska gámafélagsins ehf. dagsett þann 11. júní 2025.

Fleiri fréttir

4. júní 2025