Íslendingar endurnota 20 kg á ári

14. janúar 2025

Íslendingar eru sólgnir í notaðar vörur en hingað til hefur ekki verið vitað hversu mikið magn er endurnotað á hverju ári. Ný rannsókn sýnir að endurnotkun á Íslandi var 19,93 kg/íbúa árið 2023.

Með sífellt vaxandi umsvifum loppumarkaða, samfélagsmiðla og aukinni umhverfisvitund almennings á Íslandi hefur markaður endurnotkunar náð rótfestu á nýliðnum árum. Endurnotkun stuðlar að ríkara hringrásarhagkerfi á Íslandi. Endurnotkun er umhverfisvænni og yfirleitt hagstæðari kostur en kaup á nýjum vörum. Umhverfisstofnun gaf út skýrslu í lok árs 2024 með niðurstöðum úr kortlagningu á endurnotkun á Íslandi árið 2023. Þetta er í fyrsta sinn sem endurnotkun hefur verið mæld hér á landi á þessum skala. Skýrsluna má nálgast hér.

Hvað er endurnotkun?

Hugtakið endurnotkun er skilgreint í lögum um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 sem: „hvers kyns aðgerð þar sem vörur eða íhlutir, sem ekki eru úrgangur, eru notuð í sama tilgangi og þau voru ætluð til í upphafi.“ Dæmi um endurnotkun er þegar notaðar vörur eru seldar í netsölu, sölutorgum á samfélagsmiðlum, nytjamörkuðum eða afhentar gefins á milli fólks. Endurnotkun er hluti af úrgangsforvörnum.

Endurnotkun oftast án milliliða

Við mælingar og útreikninga á endurnotkun var notast við samevrópska aðferðarfræði. Endurnotkun var mæld fyrir vöruflokkana húsgögn, vefnaðarvörur, raftæki, byggingarefni og annað. Notast var við gögn frá þekktum gagnalindum í bland við hlutfall milliliðalausrar endurnotkunar. Til að reikna það hlutfall var send út könnun til almennings varðandi endurnotkun á þeirra heimili. Niðurstöður spurningakönnunarinnar gáfu mynd á hlutfall milliliðalausrar endurnotkunar fyrir hvern vöruflokk. Þetta hlutfall var yfir 60% fyrir alla vöruflokka.

Niðurstöður fyrir hlutfall milliliðalausrar endurnotkunar úr könnun meðal almennings

Föt minna en 3%

Heildarendurnotkun á Íslandi var 19,93 kg/mann árið 2023. Húsgögn var stærstur hluti af endurnotkun (40%), næst byggingarefni (29%), raf- og rafeindatæki (14%), vefnaðarvara (3%) og annað (14%), miðað við þyngd.

Skipting endurnotkunar niður á vöruflokka.

Þegar skoðað var nánar niður á vöruflokka voru föt stærsti hlutinn af endurnotkun af vefnaðarvörum. Stór markaður hefur myndast á Íslandi fyrir endursölu á fötum og einnig fara notuð föt oft gefins. Stærstur hluti endurnotkunar á byggingarefnum var timbur.

Stækkandi markaður

Sú staðreynd að Íslendingar endurnoti um 20 kg/íbúa af vörum á ári sýnir að hér ríkir endurnotkunarmenning. Stærstur hluti endurnotkunar fer fram í gegn um milliliðalausa farvegi án endurgjalds. Endurnotkun heldur vörum lengur inni í hringrásarhagkerfinu. Við gagnasöfnun kom í ljós að velta loppumarkaða hefur farið stigvaxandi á undanförnum árum. Miðað við þessa stigmögnun má ætla að endurnotkunarmarkaðurinn á Íslandi muni einungis styrkjast í náinni framtíð.

Fleiri fréttir