Breytingar á skilum gagna um úrgang

10. febrúar 2026

Nú er opið fyrir skil á gögnum um magn og meðhöndlun úrgangs fyrir árið 2025 í gagnagátt Umhverfis- og orkustofnunar. Stofnunin hvetur rekstraraðila sem meðhöndla úrgang að skila gögnum fyrir 31. mars. Lögbundin frestur er til 30. apríl 2026.

Leiðbeiningar um skilin hafa verið uppfærðar í takti við neðangreint.

Mynd eftir Josh Reid af Unsplash

Helstu breytingar sem rekstraraðilar þurfa að kynna sér

1. Skil á göngum um söfnun og millimeðhöndlun.

Í fyrsta skipti þarf nú að skila gögnum um söfnun og millimeðhöndlun úrgangs. Millimeðhöndlun er til dæmis geymsla, böggun, flokkun, flutningur og pökkun úrgangs.

2. Lokameðhöndlun innanlands eða erlendis.

Við skil gagna um lokameðhöndlun þarf nú að taka þarf fram hvort hún fari fram á Íslandi eða erlendis. Rekstraraðilar sem flytja úrgang úr landi til meðhöndlunar skrá slíka meðhöndlun sem erlenda.

3. Breytt skráning á ristarúrgangi og seyru.

Breyting hefur orðið á skráningu úrgangsflokksins: 11.4 Ristarúrgangur og seyra (liður 51). Ristarúrgangur hefur verið aðskilinn frá seyru.

4. Nánari skráning á urðun.

Rekstraraðilar sem skrá urðun innanlands þurfa að tilgreina urðunarstað eða merkja urðun utan urðunarstaða. Urðunarstaðir sem skráningaraðili er tengdur við birtast sjálfkrafa í felliglugga í gáttinni.

Sé  urðun skráð utan urðunarstaða er mælst til þess að framkvæmdinni sé nánar lýst í athugasemd í loka skrefi skila. Til að dæmis ef um er að ræða seyrugryfju, uppfyllingu gamallar námu eða einhverskonar jarðvegslosunarstað.

Gert er ráð fyrir því að öll urðun erlendis fari fram á urðunarstöðum sem hafa leyfi til að taka við viðkomandi úrgangi. Oft er hér um að ræða rekstraraðila sem senda sértækan rekstrarúrgang beint til meðhöndlunar erlendis sem kann að vera urðun. Rekstraraðilar skrá þá urðun utan urðunarstaða og erlendis.

Mikill hagur er fyrir stofnunina að fá nánari upplýsingar um urðun í athugasemdareit í gagnaskilunum. Til dæmis í hvaða landi urðunin fer fram.

Hafa samband

Ef vandmál koma upp er hægt að hafa samband í síma 569 6000 (óska eftir að tala við Pétur Gunnarsson eða Rakel Kristjánsdóttur) eða með því að senda tölvupóst á urgangur@uos.is.

Fleiri fréttir