Nýtt rafrænt kerfi fyrir flutning úrgangs

6. febrúar 2026

Á vordögum er mikilla breytinga að vænta í ferlinu við tilkynningar um flutning úrgangs til og frá Evrópu. Ferlið færist úr pappír yfir í samevrópskt rafrænt kerfi fyrir flutning úrgangs milli landa. Þessi breyting á eftir að fela í sér mikinn tímasparnað við umsýslu tilkynninga, bæði fyrir tilkynnendur og starfsfólk Umhverfis-og orkustofnunar.

Breyting úr pappír yfir í rafrænt kerfi

Samevrópska kerfið kallast DIWASS. Það verður innleitt í allri Evrópu þann 21. maí 2026. DIWASS verður notað fyrir flutningstilkynningar, staðfestingar- (e. acknowledgement) og samþykki (e. consent) stjórnvalda, flutningspappíra og til að halda utan um gögn. Allir aðilar sem koma að flutningi úrgangs munu skrá upplýsingar frá sér inn í kerfið – ekki aðeins stjórnvöld og tilkynnandi heldur einnig flytjandi, úrvinnsluaðili og aðrir aðilar eftir þörfum. Stjórnvöld og allir aðilar sem meðhöndla þann úrgang sem fluttur er munu hafa aðgang að kerfinu og geta séð upplýsingar um sendingar sem þeir taka þátt í að flytja. Eftirlitsaðilar munu hafa lesaðgang inni í kerfinu.

Innleiðing

Frá og með 21. maí 2026 verður notkun DIWASS skylda fyrir allan flutning úrgangs innan ESB, sem gerir allt ferlið að fullu stafrænt. Sá dagur verður einnig síðasti dagur sem pappírstilkynningar verða samþykktar. DIWASS mun ná yfir:

  • Tilkyningarskyldan/hættulegan úrgang (e. hazardous waste): Þetta mun hagræða og flýta fyrir samþykkisferlinu.
  • Úrgang sem telst ekki sem hættulegur („Græn lista“ úrgang/e. green-listed waste): Bæta yfirsýn og eftirlit.

Umhverfis- og orkustofnun sér um stjórnsýslu flutnings úrgangs til og frá Íslandi. Því mun stofnunin starfa í nýja kerfinu og fasa út pappírsnotkun samhliða upptöku kerfisins. Stofnunin mun halda utan um- og samþykkja nýja notendur sem og tilkynningar í gegn um DIWASS kerfið. Haldinn verður opinn fundur fyrir tilkynnendur, flutningsaðila og aðra mögulega notendur kerfisins verður haldinn í mars 2026. Nánari dagsetning verður tilkynnt þegar nær dregur.

Regluverk

Evrópusambandið hefur innleitt nýja reglugerð (ESB) 2024/1157 um flutning úrgangs á milli landa, en hefur hún ekki verið innleidd enn á Íslandi. Þó verður kerfið tekið upp á sama tíma og í Evrópu, þar sem Evrópa mun ekki taka við pappírstilkynningum eftir 21. maí 2026.

Algengar spurningar:

Ég er með samþykkta tilkynningu þar sem sendingar hófust fyrir 21. maí 2026, verður tilkynningin mín færð yfir í rafræna kerfið?

  • Sendingar innan tilkynningar sem samþykkt var út fyrir 21. maí 2026, munu halda áfram á pappírsformi. Sendingar sem tilheyra tilkynningum sem samþykktar verða eftir 21. maí 2026 verða inni í DIWASS kerfinu.

Hvernig fæ ég aðgang að rafræna kerfinu?

  • Opnað verður fyrir aðgang að kerfinu í apríl 2026. Á Íslandi verða skráningar í gegnum EU Login. Þau fyrirtæki sem notast við EORI-númer í sinni starfsemi geta skráð sig inn með þeim.

Gildir þetta einungis um sendingar til og frá Evrópu?

  • DIWASS kerfið verður notað fyrir sendingar til-, frá- og í gegnum Evrópska efnahagssvæðið sem Ísland er hluti af.

Endilega sendið fyrirspurnir á uos@uos.is ef spurningar vakna um kerfið. Annars verður kerfið og breytingarnar kynntar á opnum kynningarfundi í mars 2026.

Fleiri fréttir