Heildarmagn úrgangs á Íslandi árið 2023 voru 1.131.398 tonn, sem nemur 28% samdrátt frá árinu á undan. Skýrist það aðallega vegna mikilla breytinga á einum úrgangsflokki, þ.e. jarðefni. Það fór úr 877þús. tonnum árið 2022 í 494þús. tonn árið 2023. Þetta magn getur flakkað mikið á milli ára, og stýrist aðallega af hve mikill jarðvegsúrgangur verður til vegna framkvæmda í byggingageiranum.
Þó stærsta breytingin milli ára hafi verið vegna jarðefna, þá hefur ýmislegt breyst á einu ári, bæði jákvætt og neikvætt. Skoðum það nánar.
Heildarmagn úrgangs skiptist í heimilisúrgang og rekstrarúrgang. Rekstrarúrgangur skiptist síðan í iðnaðar- og rekstrarúrgang og úrgang frá mannvirkjagerð.
Árið 2023 skiptist hlutfall úrgangs í 20% heimilisúrgang og 80% rekstrarúrgang.
Þegar litið er til ráðstöfunar úrgangs árið 2023 má sjá að:

Hér má finna samantektir á magni úrgangs, eftir úrgangsflokkum og meðhöndlunarleiðum: Samantekt á heildarmagni og meðhöndlun úrgangs | Úrgangur.is | Umhverfis- og orkustofnun
Heimilisúrgangur
Heimilisúrgangur (e. municipal waste) er sá úrgangur sem fellur til á heimilum en einnig hjá lögaðilum. Úrgangsflokkar heimilisúrgangs3 eru 13 talsins og taka á öllu frá umbúðum, pappír og viðarúrgangi til garðúrgangs, raftækja og blandaðs heimilisúrgangs.
Ártal | Magn (þús. tonn) | Fjöldi íbúa á Íslandi |
2021 | 250 | 368.792 |
2022 | 217 | 364.917 |
2023 | 224 | 375.218 |
Heildarmagn heimilisúrgangs hækkaði um 3% milli áranna 2022 og 2023, en þá hækkun má einna helst rekja til fjölgun íbúa. Í grafinu að neðan má sjá þróun heimilisúrgangs niður á hvern íbúa þegar litið er yfir heilt ár, ásamt meðaltali af magni heimilisúrgangs fyrir hvern íbúa innan Evrópusambandsins. Heimilisúrgangur á hvern íbúa á Íslandi stóð í stað milli áranna 2023 og 2022 (596kg), á meðan meðaltalið innan Evrópusambandsins lækkaði um 4kg.

Urðun heimilisúrgangs (innanlands og sent erlendis) lækkaði úr 34% (2022) í 28% (2023), en samkvæmt reglugerð um meðhöndlun úrgangs (nr. 803/2023) verður heimilt að urða að hámarki 10% af þeim heimilisúrgangi sem fellur til árið 2035. Það miðar því í rétta átt hvað varðar lækkun hlutfalls urðunar. Hlutfall heimilisúrgangs sem var urðaður hérlendis árið 2023 er 20% (62þús. tonn).
Ólíkt fyrra ári, þá skilaði lækkað hlutfall urðunar heimilisúrgangs sér í aukinni endurvinnslu, sem fór úr 25% (2022) í 32% (2023), en á grafinu að neðan má sjá ráðstöfun heimilisúrgangsins árið 2023.

Samkvæmt reglugerð um meðhöndlun úrgangs skal endurvinnsla heimilisúrangs vera að lágmarki 50%. Hlutfallið hækkar síðan upp í 55% fyrir árið 2025, 60% fyrir árið 2030 og 65% fyrir árið 2035. Með hækkun á endurvinnsluhlutfalli heimilisúrgangs miðar allt í rétta átt, en það er þó enn langt í land til að ná markmiðum stjórnvalda.
Staðan á ráðstöfunarmarkmiðum ákveðinna úrgangsflokka
Í töflunni að neðan má sjá stöðuna á ráðstöfunarmarkmiðum ákveðinna úrgangsflokka, en Íslandi ber skylda að uppfylla þessi markmið samkvæmt lögum. Ísland á enn langt í land með að ná settum markmiðum fyrir lágmarks endurvinnslu og hámark urðunar fyrir heimilisúrgang.
Staðan á endurvinnslumarkmiðum fyrir ákveðna umbúðaúrgangsflokka (sem tilheyra heimilisúrgangi) er þó nokkuð góð, en þó ekki jafn góð og taflan að neðan gefur til kynna. Það skýrist af því að endurvinnsluhlutfallið fyrir a.m.k. pappírs- og pappaumbúðir og viðarumbúðir er of hátt, sem má rekja til vanmats á hversu mikið myndast af viðkomandi umbúðaúrgangi (nefnarinn við útreikning endurvinnsluhlutfalls). Verið er að vinna í leiðréttingu á endurvinnsluhlutfallinu fyrir þá umbúðaúrgangsflokka.

Grænt – Núverandi markmið er uppfyllt og stefnir í að ný markmið munu nást.
Gult – Núverandi markmið er uppfyllt/nánast uppfyltt, en ekki víst að ný markmið munu nást.
Rautt – Núverandi markmið er ekki uppfyllt og ný markmið munu að öllum líkindum ekki nást.
Mælaborð og gegnsæi gagna
Magntölur úrgangs, sem var fjallað um hér, var safnað af Umhverfis- og orkustofnun, og eru þær byggðar á réttustu gögnum hverju sinni fyrir magn og meðhöndlun úrgangs á Íslandi. Þó má búast við smávægilegri leiðréttingu á gögnum fyrir raf- og rafeindatækjaúrgang og endurvinnsluhlutfalli ákveðinna úrgangsflokka.
Verið er að vinna að uppfærðu mælaborði, og á meðan liggur núverandi mælaborð niðri. Ef þörf er á ákveðnum úrgangstölfræðiupplýsingum má hafa samband við Umhverfis- og orkustofnun og þér verður gefið samband við sérfræðing.
- Undirbúningur fyrir endurnotkun, jarðgerð, önnur endurvinnsla, fylling, orkuendurnýting og önnur endurnýting. ↩︎
- Urðun og brennsla án orkunýtingar. ↩︎
- Umbúðarúrgangur (málm-, gler-, pappírs- og pappa-, plast- og viðarumbúðir) –
Pappírs- og pappaúrgangur – Viðarúrgangur (annar en frá byggingar- og niðurrifsstarfsemi – Textílúrgangur – Ákveðinn raf- og rafeindatækjaúrgangur – Ákveðnar rafhlöður og rafgeymar – Matarúrgangur frá eldhúsum og verslunum – Garðaúrgangur – Blandaður heimilisúrgangur (þ.e. öll sorphirða og það sem hirt er af gámasvæði þar á meðal rúmfrekur úrgangur). ↩︎