Kynning á nýju rafrænu kerfi fyrir flutning úrgangs milli landa

25. mars 2026

Þann 21. maí 2026 verður nýtt rafrænt kerfi tekið í notkun fyrir flutning úrgangs milli landa. Kerfið er samevrópskt og munu öll ríki Evrópusambandsins taka það upp samtímis. Kerfið gengur undir nafninu DIWASS og sagt var betur frá því í frétt á úrgangur.is þann 6. febrúar.

Kynningarmyndbönd sem útskýra notkun kerfisins eru aðgengileg á heimasíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Haldinn var kynningarfundur um nýja kerfið þann 26. mars og má finna upptökuna hér að neðan.

Fleiri fréttir