Ný lög í úrgangsmálum taka gildi 2023 – hvað mun breytast?

Frétt á ensku/News in English Frétt á pólsku/Nowości w języku polskim   Ný lög í úrgangsmálum á Íslandi taka gildi þann 1. janúar 2023 þegar breytingar verða á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs og úrvinnslugjald. Lagabreytingarnar hafa verið kallaðar einu nafni hringrásarlögin en markmið laganna snýst þó aðallega um að draga úr myndun […]

Aðgerðir sem beinast gegn rusli í Norðaustur-Atlantshafi

Önnur aðgerðaáætlun OSPAR til að takast á við rusl í Norðaustur-Atlantshafi kom út þann 28. júní 2022. Aðgerðaáætlunin nær yfir tímabilið 2022-2030. Aðgerðaáætlunin inniheldur 25 aðgerðir sem tengjast allar áskorunum við að draga úr rusli bæði frá landi og sjó. Þar á meðal að: Fulltrúi Umhverfisstofnunar í gerð aðgerðaáætlunar OSPAR situr í vinnuhóp um rusl í […]

Útgáfa handbókar sveitarfélaga

Handbók um framkvæmd úrgangsstjórnunar hefur verið gefin út og er birt á vefsíðu Umhverfisstofnunar. Um er að ræða vegvísi sveitarfélaga í úrgangsmálum sem fjallar um þær stefnumótandi ákvarðanir og þjónustu sem sveitarstjórnum eru faldar samkvæmt lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Í Handbókinni má m.a. finna ítarlegar leiðbeiningar um gerð svæðisáætlana (kafli 3.2 og sniðmát í VIÐAUKA […]

Uppfærsla á magntölum úrgangs 2020

Umhverfisstofnun hefur uppfært magntölur úrgangs á Íslandi fyrir árið 2020. Magntölur voru birtar upphaflega þann 4. apríl 2022. Síðar kom í ljós villa í skilaskýrslu umfangsmikils úrgangsmeðhöndlunaraðila. Við leiðréttingu kom í ljós að uppfæra þurfti heildarmagntölur ársins 2020. Niðurstaðan er að heildarmagnið eykst um 8.000 tonn en allur sá úrgangur fór í endurnýtingu en ekki í förgun. […]

Eftirlit með upplýsingagjöf fyrirtækja skilar árangri

Árið 2021 var farið í fyrirvaralaus eftirlit til innflytjenda rafhlaðna, rafgeyma og raf- og rafeindatækja, sem höfðu ekki fengið eftirlitsheimsókn áður. Niðurstöður eftirlitsins Það greindust frávik hjá 8 aðilum. 1 af þessum 8 aðilum var ekki með móttöku á notuðum rafhlöðum/ rafgeymum. 11 af þeim 161 vörum sem voru skoðaðar reyndust án tunnumerkisins. Í tveimur […]