Frétt á ensku/News in English

Frétt á pólsku/Nowości w języku polskim

 

Ný lög í úrgangsmálum á Íslandi taka gildi þann 1. janúar 2023 þegar breytingar verða á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, meðhöndlun úrgangs og úrvinnslugjald.

Lagabreytingarnar hafa verið kallaðar einu nafni hringrásarlögin en markmið laganna snýst þó aðallega um að draga úr myndun úrgangs og stuðla að myndun endurvinnslusamfélags hér á landi. Við þurfum að tileinka okkur nýtt viðhorf ef við viljum byggja upp íslenskt hringrásarhagkerfi og hugsa um úrganginn okkar sem auðlind sem við getum endurunnið aftur og aftur, en ekki efni til urðunar.

Lagabreytingarnar hafa víðtæk áhrif á almenning, sveitarfélög og atvinnulífið í heild sinni og kalla á þátttöku allra aðila við að fylgja breytingunum eftir. En í hverju felast þessar lagabreytingar?

Hvað þýða lagabreytingarnar fyrir almenning?

– Sama flokkunarkerfi mun gilda um allt land og verður skylt að flokka úrgang í a.m.k. sjö flokka sem eru pappír, plast, lífúrgangur, textíll, málmar, gler og spilliefni.

– Sömu merkingar verða notaðar fyrir tunnur og ílát um allt land sem á að einfalda flokkun og gera hana skilvirkari.

– Sveitarfélögin geta farið að innheimta gjöld fyrir meðhöndlun úrgangs eftir kerfi sem nefnist Borgað þegar hent er.

Hvað þýða lagabreytingarnar fyrir atvinnulífið?

– Vinnustaðir þurfa einnig að flokka sinn úrgang í sjö flokka sem eru pappír, plast, lífúrgangur, textíll, málmar, gler og spilliefni.

– Byggingar- og niðurrifsúrgangur skal flokkaður í a.m.k. eftirfarandi flokka samkvæmt nýju lögunum, þ.e. spilliefni, timbur, steinefni, málm, gler, plast og gifs.

– Úrvinnslugjald verður lagt á fleiri umbúðir sem tryggir það að framleiðendur og innflytjendur vara standa straum af kostnaði við að safna og endurvinna umbúðir.

Lögin munu taka gildi um áramótin en innleiðing breytinganna og aðlögun að þeim mun standa yfir allt árið 2023. Mörg sveitarfélög eru langt komin með að aðlaga sín kerfi að lagabreytingunum á meðan önnur eru á skemmri veg komin. Sveitarfélögin veita upplýsingar um stöðu innleiðingar og hvernig fyrirkomulagi verður háttað, s.s. hvenær má búast við því að fjórum flokkum úrgangs verði safnað við heimili.

Lagabreytingarnar eru mikilvægt fyrsta skref í átt að hringrásarhagkerfi og einn liður í því að standa við skuldbindingar okkar í loftslagsmálum. Nú reynir á íslenskt samfélag að framfylgja þeim. Við þurfum að flokka úrgang betur svo hægt sé að endurnýta og endurvinna hann, hringrásarhugsun þarf við hönnun og vöruþróun, rýmka fyrir markaði endurnotkunar og kannski fyrst og fremst, huga alls staðar í ferlinu, hvar er hægt að lágmarka sóun.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *