Niðurstöður mælinga á matarsóun

Matarsóun á Íslandi jafngildir um 160 kílóum á hvern íbúa á ári. Tæpur helmingur allrar matarsóunar á sér stað í frumframleiðslu matvæla en um 40% á heimilum. Þetta sýna niðurstöður mælinga Umhverfisstofnunar sem birtar eru í dag á alþjóðlegur degi Sameinuðu þjóðanna gegn matarsóun. Stofnunin hefur í fyrsta sinn mælt matarsóun í allri virðiskeðju matvæla […]
Losun frá úrgangi árið 2021

Urðun úrgangs er langversti kosturinn við að meðhöndla úrgang, bæði ef horft er til losunar gróðurhúsalofttegunda og hvernig urðun veldur því að verðmætum auðlindum er glatað úr hringrásinni. Urðun úrgangs hefur einnig bein neikvæð áhrif á umhverfið með mengun lífríkis á landi og í sjó. Hvert tonn af úrgangi sem urðað er í dag losar […]
Hleðslurafhlöður betri kostur fyrir umhverfið

Flest notum við rafhlöður án þess að velta fyrir okkur hvaða umhverfisáhrif notkun þeirra hefur. Almennt fylgir því töluvert lægra umhverfisfótspor að nota fjölnota vörur í stað einnota vara og á það vel við um rafhlöður. Hleðslurafhlöður eru nefnilega mun betri kostur fyrir umhverfið en einnota rafhlöður. Betri kostur fyrir umhverfið Umhverfisáhrif af rafhlöðunotkun má […]
Heildarmagn úrgangs 2021 – magn heimilisúrgangs jókst um 9% á milli ára

Heildarmagn úrgangs á Íslandi var um 1.305 þúsund tonn árið 2021. Úrgangstölfræðin sýnir að úrgangsmagn hefur í heild aukist árið 2021 eftir að hafa dregist saman árið 2020. Magnið hefur þó ekki náð sömu hæðum og árin fyrir Covid. Urðun úrgangs, sem ein meðhöndlunarleið, hefur dregist saman á milli ára en endurvinnsla og önnur endurnýting […]
Flokkun úrgangs, umhverfisvænir neysluhættir og verkaskipting karla og kvenna – niðurstöður viðhorfskönnunar

Konur bera meiri þunga af flokkun og endurvinnslu úrgangs á heimilum en karlar. Hugur er í landsmönnum sem flestir telja sig flokka allan sinn úrgang og hafa áhuga á að flokka í enn fleiri flokka en mögulegt er nú þegar við heimili. Það má því telja líklegt að lagabreytingar sem tóku gildi 1. janúar muni […]
Opinn kynningarfundur um leiðbeiningar um flokkun úrgangs frá flutningstækjum í alþjóðlegri umferð

Upptaka af kynningarfundinum aðgengileg hér. Þann 1. febrúar klukkan 13.00 fer fram opinn kynningarfundur á leiðbeiningum Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar um flokkun úrgangs frá flutningstækjum í alþjóðlegri umferð. Fundurinn verður haldinn rafrænt í gegnum Teams. Á fundinum munu fulltrúar Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar fara stuttlega yfir innihald leiðbeininganna og í kjölfarið verður spurt og svarað þar sem […]
Nowa ustawa o odpadach wchodzi w życie w 2023 roku – co ulegnie zmianie?

Nowe przepisy dotyczące odpadów weszły w życie w Islandii 1 stycznia 2023 roku. Celem zmiany prawa jest ograniczenie wytwarzania odpadów oraz działanie na rzecz utworzenia w Islandii społeczeństwa recyklingowego. Musimy przyswoić sobie nowe nastawienie, jeśli chcemy stworzyć w Islandii gospodarkę o obiegu zamkniętym i myśleć o naszych odpadach jako o zasobie, który możemy wielokrotnie przetwarzać, […]
A new law on waste takes effect in 2023 – what will change?

A new law on waste in Iceland took effect on 1st of January 2023. These laws have often been called The circular law (in Icelandic hringrásarlögin), as the aim of these legal changes is to reduce the amount of waste generated and to promote the creation of a recycling society in this country. We need […]
Bætt úrgangstölfræði – stefna og staða verkefnis

Áreiðanleg gögn lykilatriði við úrgangsstjórnun Úrgangsstjórnun og markmiðasetning verður markvissari ef hún byggir á góðum gögnum. Úrgangstölfræði er safnað í gegnum gagnagátt Umhverfisstofnunar. Heildarmagn og ráðstöfun úrgangs er birt á vefsíðu stofnunarinnar allt aftur til ársins 2014. Einnig má þar sjá tölfræði ýmissa úrgangsflokka og markmið endurvinnslu og endurnýtingar. Hagstofan notar gögn frá Umhverfisstofnun og birtir á vefsíðu sinni. […]
Flokkun og endurvinnsla frá flugvélum og skipum – nýjar leiðbeiningar fyrir rekstraraðila

Umhverfisstofnun og Matvælastofnun hafa gefið út leiðbeiningar um flokkun úrgangs frá flugvélum og skipum í alþjóðlegri umferð. Hingað til hefur rekstraraðilum verið gert að brenna allan úrgang frá millilandaumferð en með nýrri túlkun Evrópuregluverksins og með tilliti til framkvæmdar í öðrum löndum hefur opnast sá möguleiki að endurvinna stóran hluta þessa úrgangs. Leiðbeiningarnar miða að […]