Leiðbeiningar fyrir flokkun á byggingar- og niðurrifsúrgangi

Nýjar flokkunarleiðbeiningar fyrir byggingarsvæði hafa verið gefnar út. Leiðbeiningarnar eru myndrænar og á þremur tungumálum (íslensku, ensku og pólsku). Mælt er með að staðsetja þær við gáma og á kaffistofum til að tryggja betri flokkun. Leiðbeiningarnar má finna hér. Byggjum grænni framtíð Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð. Aðgerð 4.3. […]

Skýrsla um matarsóun á Íslandi

Matarsóun á Íslandi jafngildir um 160 kílóum á hvern íbúa á ári. Tæpur helmingur allrar matarsóunar á sér stað í frumframleiðslu matvæla en um 40% á heimilum. Þetta sýna niðurstöður mælinga Umhverfis- og orkustofnunar. Stofnunin hefur í fyrsta sinn mælt matarsóun í allri virðiskeðju matvæla eftir staðlaðri aðferðafræði Evrópusambandsins. Niðurstöðurnar hafa verið kynntar áður en […]

Íslendingar endurnota 20 kg á ári

Íslendingar eru sólgnir í notaðar vörur en hingað til hefur ekki verið vitað hversu mikið magn er endurnotað á hverju ári. Ný rannsókn sýnir að endurnotkun á Íslandi var 19,93 kg/íbúa árið 2023. Með sífellt vaxandi umsvifum loppumarkaða, samfélagsmiðla og aukinni umhverfisvitund almennings á Íslandi hefur markaður endurnotkunar náð rótfestu á nýliðnum árum. Endurnotkun stuðlar […]

Úrgangsþríhyrningurinn og hátíðarnar

Nú er desember genginn í garð og styttist óðfluga í jól og áramót. Á jólum sem og öðrum tímum er mikilvægt að hugsa um umhverfið. Úrgangsþríhyrningurinn segir til um forgangsröðun í úrgangsmálum, þar er mest áhersla lögð á að draga úr neyslu, þar á eftir að nýta hlutina lengur og endurnota, svo endurvinna og að […]

Skýrsla um stöðu Íslands gagnvart markmiðum í úrgangsmálum

Ísland þarf að spýta í lófana til að ná markmiðum sínum fyrir árið 2025 í úrgangsmálum. Þetta sýnir nýleg úttekt frá Eftirlitsstofnun EFTA sem gerð var á stöðu Íslands gagnvart þeim markmiðum landsins í úrgangsmálum sem snúa að heimilisúrgangi. Í úttektinni er miðað við tölfræði ársins 2021 en síðan þá hefur þó margt vatn runnið […]

Alþjóðlegi rafrusldagurinn 14. október 2024

Þann 14. október 2024 verður alþjóðlegi rafrusldagurinn haldinn af WEEE forum (WEEE = Waste from Electrical and Electronic Equipment / Raf- og rafeindatækjaúrgangur). Áherslan í ár er að leita að biluðum, ónýtum eða ónotuðum raftækjum sem geymd (eða gleymd) eru á heimilum fólks. Dæmi um slík tæki eru gamlir farsímar, tölvur, snúrur, heyrnartól ofl. Af […]

87% íslenskra heimila flokka lífúrgang – Niðurstöður á könnun um heimajarðgerð

Eftir að nýju flokkunarlögin voru innleidd árið 2023 eru heimilin í landinu farin að flokka lífúrgang í auknum mæli. Heimajarðgerð verður einnig sífellt vinsælli á Íslandi. Umhverfisstofnun vildi meta umfang heimajarðgerðar á Íslandi og í september 2024 fengum við Gallup til að gera litla könnun um efnið. Markmiðið með verkefninu var að meta það hvernig lífúrgangur er flokkaður […]

Ný reglugerð um vistvæna hönnun tekur gildi í Evrópu

Vissir þú að um 80% af umhverfisáhrifum vöru eru ákvörðuð á hönnunarstiginu? Ný Evrópureglugerð sem tengist vistvænni hönnun setur kröfur á framleiðendur að huga meira að sjálfbærni í hönnunarferlinu á sínum vörum. Markmið Reglugerðin um vistvæna hönnun hefur nú þegar tekið gildi í Evrópusambandinu en er í skoðun hjá EES ríkjunum. Markmið reglugerðarinnar er að […]

Heimilisúrgangur dregst saman – Úrgangstölur fyrir Ísland árið 2022

Heildarmagn heimilsúrgagns á hvern íbúa dróst saman um 9% á milli áranna 2021 og 2022. Urðun á heimilisúrgangi dróst á sama tíma saman um 24%.  Heildarmagn úrgangs 2022 jókst um 21% frá fyrra ári.  Aukning á heildarmagni úrgangs tengist aukningu rekstrarúrgangs og skýrist að stórum hluta af nákvæmari skráningu á magni jarðvegsúrgangs, fremur en mikilli […]

Íslenska úrgangsfjallið hlýtur tilnefningu til Lúðursins

Hver Íslendingur henti 667 kílóum árið 2021 / Mynd: Anton Brink

Umhverfisstofnun og auglýsingastofan TVIST hafa hlotið tilnefningu til auglýsingaverðlaunanna Lúðursins. Tilnefningin er í flokki PR – almannatengsla fyrir íslenska úrgangsfjallið. Íslenska úrgangsfjallið var sett upp á viðburði til þess að vekja athygli á verkefninu Allan hringinn. Ísland er í sjöunda sæti yfir þær þjóðir innan Evrópu sem henda mestu magni af heimilisúrgangi á hverju ári […]