Þýðingarmikil hráefni – af hverju eru þau mikilvæg?

Þýðingarmikil hráefni (e. critical raw materials) eru sífellt meira í umræðunni í Evrópu. Evrópusambandið hefur skilgreint 34 hráefni sem þýðingarmikil. Er það skilgreint út frá efnahagslegri þýðingu og áhættu í framboði á efnunum. Listinn er breytilegur og Evrópusambandið uppfærir hann reglulega ef þörf er á. Það sem einkennir þýðingarmikil hráefni er yfirleitt að núverandi hagkerfi […]

Belgía bannar einnota rafrettur

Notkun einnota rafrettna er ekki aðeins slæm fyrir heilsuna heldur einnig fyrir umhverfið því rafrettur innihalda einnota rafhlöður, plast og önnur hráefni sem geta valdið umhverfinu skaða ef þeim er ekki fargað á réttan hátt. Þann 1. janúar tók Belgía það skref að banna notkun einnota rafrettna í landinu og fyrirsjáanlegt er að fleiri lönd […]

Leiðbeiningar fyrir flokkun á byggingar- og niðurrifsúrgangi

Nýjar flokkunarleiðbeiningar fyrir byggingarsvæði hafa verið gefnar út. Leiðbeiningarnar eru myndrænar og á þremur tungumálum (íslensku, ensku og pólsku). Mælt er með að staðsetja þær við gáma og á kaffistofum til að tryggja betri flokkun. Leiðbeiningarnar má finna hér. Byggjum grænni framtíð Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð. Aðgerð 4.3. […]

Alþjóðlegi rafrusldagurinn 14. október 2024

Þann 14. október 2024 verður alþjóðlegi rafrusldagurinn haldinn af WEEE forum (WEEE = Waste from Electrical and Electronic Equipment / Raf- og rafeindatækjaúrgangur). Áherslan í ár er að leita að biluðum, ónýtum eða ónotuðum raftækjum sem geymd (eða gleymd) eru á heimilum fólks. Dæmi um slík tæki eru gamlir farsímar, tölvur, snúrur, heyrnartól ofl. Af […]