30 ár af vasaskrímslum (og úrgangi)

Í dag er alþjóðlegi vasaskrímsladagurinn (International Pokémon Day), en vasaskrímslin fagna 30 ára afmæli! Dagurinn er haldinn hátíðlegur í tilefni upprunalegu tölvuleikjanna, sem komu út 27. febrúar, árið 1996. Síðan þá hafa vasaskrímslin notið gífurlegra vinsælda á heimsvísu í formi tölvuleikja, leikfanga og safngripa. Úrgangsskrímsli Vasaskrímslin eru jafn fjölbreytileg og þau eru mörg (yfir 1000 […]

Frágangur flugelda eftir áramót

Umhverfis- og orkustofnun minnir á mikilvægi þess að ganga vel frá flugeldarusli og flokka úrgang rétt að hátíðarhöldum loknum. Mikilvægt er að setja flugeldarusl ekki í flokkunartunnu fyrir pappaúrgang, þar sem snerting við flugeldaúrgang getur gert annan pappa óhæfan til endurvinnslu. Óuppsprungnir flugeldar geta verið hættulegir og ef minnsti vafi leikur á því hvort flugeldur […]

Flokkunarleiðbeiningar á 3 tungumálum

Flokkunarleiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar eru komnar út á PDF formi á íslensku, ensku og pólsku. Leiðbeiningarnar eru ætlaðar fyrir heimili, húsfélög, fyrirtæki, stofnanir og fleiri sem vilja nýta sér þær. Leiðbeiningarnar notast við samræmdu flokkunarmerkingarnar. Mælt er með að flokkunarílát séu einnig merkt með samræmdu merkingunum (sjá meira hér) til að einfalda flokkun sem mest. […]

Leiðbeiningar fyrir flokkun á byggingar- og niðurrifsúrgangi

Nýjar flokkunarleiðbeiningar fyrir byggingarsvæði hafa verið gefnar út. Leiðbeiningarnar eru myndrænar og á þremur tungumálum (íslensku, ensku og pólsku). Mælt er með að staðsetja þær við gáma og á kaffistofum til að tryggja betri flokkun. Leiðbeiningarnar má finna hér. Byggjum grænni framtíð Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð. Aðgerð 4.3. […]

Skýrsla um stöðu Íslands gagnvart markmiðum í úrgangsmálum

Ísland þarf að spýta í lófana til að ná markmiðum sínum fyrir árið 2025 í úrgangsmálum. Þetta sýnir nýleg úttekt frá Eftirlitsstofnun EFTA sem gerð var á stöðu Íslands gagnvart þeim markmiðum landsins í úrgangsmálum sem snúa að heimilisúrgangi. Í úttektinni er miðað við tölfræði ársins 2021 en síðan þá hefur þó margt vatn runnið […]

Alþjóðlegi rafrusldagurinn 14. október 2024

Þann 14. október 2024 verður alþjóðlegi rafrusldagurinn haldinn af WEEE forum (WEEE = Waste from Electrical and Electronic Equipment / Raf- og rafeindatækjaúrgangur). Áherslan í ár er að leita að biluðum, ónýtum eða ónotuðum raftækjum sem geymd (eða gleymd) eru á heimilum fólks. Dæmi um slík tæki eru gamlir farsímar, tölvur, snúrur, heyrnartól ofl. Af […]

87% íslenskra heimila flokka lífúrgang – Niðurstöður á könnun um heimajarðgerð

Eftir að nýju flokkunarlögin voru innleidd árið 2023 eru heimilin í landinu farin að flokka lífúrgang í auknum mæli. Heimajarðgerð verður einnig sífellt vinsælli á Íslandi. Umhverfisstofnun vildi meta umfang heimajarðgerðar á Íslandi og í september 2024 fengum við Gallup til að gera litla könnun um efnið. Markmiðið með verkefninu var að meta það hvernig lífúrgangur er flokkaður […]