Frágangur flugelda eftir áramót

Umhverfis- og orkustofnun minnir á mikilvægi þess að ganga vel frá flugeldarusli og flokka úrgang rétt að hátíðarhöldum loknum. Mikilvægt er að setja flugeldarusl ekki í flokkunartunnu fyrir pappaúrgang, þar sem snerting við flugeldaúrgang getur gert annan pappa óhæfan til endurvinnslu. Óuppsprungnir flugeldar geta verið hættulegir og ef minnsti vafi leikur á því hvort flugeldur […]
Gagnaskil úrgangs: Söfnun og millimeðhöndlun

Frá og með úrgangsgagnaskilum árið 2026 ber rekstraraðilum að skila inn gögnum um söfnun og millimeðhöndlun. Skil á gögnum fyrir lokameðhöndlun verða með svipuðum hætti og áður. Ástæður þessarar viðbótar eru eftirfarandi: Orðskýringar Söfnun: Það að safna úrgangi saman. Dæmi: allt sem er safnað beint frá aðilum sem mynda úrganginn, hvort sem það er frá […]
Íslenska gámafélagið hefur endurvinnslu á gleri

Umhverfis- og orkustofnun hefur gefið út ráðgefandi álit þess efnis að glerumbúðaúrgangur, eða sambærilegt gler, hætti að vera úrgangur þegar hann hefur farið í gegnum endurnýtingaraðgerð Íslenska gámafélagsins ehf. þar sem afurðin er glersandur eða glermöl. Kostur þess að vinna vöru úr úrgangi frekar en úr nýju hráefni er að draga úr álagi sem […]